Fara á efnissvæði
Aftur í fréttayfirlit

Sérkjarasamningur við innanlandsflug Icelandair samþykktur

Sérkjarasamningur VR/LÍV við innanlandsflug Icelandair

Niðurstöður í atkvæðagreiðslu meðal félaga VR/LÍV í kosningu um nýgerða kjarasamninga við innanlandsflug Icelandair liggja nú fyrir.

Kjarasamningur VR/LÍV við innanlandsflug Icelandair var samþykktur með 71,43% atkvæða í kosningu sem lauk á hádegi í dag, en já sögðu 15 félagsfólk í félögum innan VR/LÍV og nei sögðu 5 eða 23,81%. Þau sem tóku ekki afstöðu voru 1 eða 4,76%. Á kjörskrá um samning VR/LÍV og innanlandsflug Icelandari var 51 félagsfólk í félögum innan VR/LÍV og greiddu 21 atkvæði, og var kjörsókn því 41,18%.