Stéttarfélög móta aðgerðaáætlun gegn kynjamisrétti
07. október 2026Evrópsk stéttarfélög móta aðgerðaáætlun gegn kynjamisrétti í verslun
Fulltrúar stéttarfélaga víðs vegar að úr Evrópu komu saman í Brussel til að móta raunhæfar leiðir til að draga úr kynjamisrétti í verslun. Áhersla var lögð á launajafnrétti, örugg ráðningarkjör, fyrirsjáanlegan vinnutíma, öryggi á vinnustöðum og jafnan aðgang að starfsþróun og símenntun.
Konur eru meirihluti starfsfólks í verslun í Evrópu en búa þrátt fyrir það við umtalsvert misrétti þegar kemur að launum, starfskjörum og möguleikum til starfsframa. Ný rannsókn sem unnin var á vegum UNI Europa undir merkjum verkefnisins I'M Pinc sýnir að þörf er á markvissum aðgerðum stéttarfélaga til að takast á við rótgróið misrétti í greininni.
Dagana 22.–23. september 2026 komu fulltrúar stéttarfélaga saman hjá UNI Europa í Brussel til að miðla reynslu, kynna árangursríkar aðgerðir og leggja mat á drög að fimm ára aðgerðaáætlun sem miðar að auknu jafnrétti í verslun.
Konur í meirihluta en misrétti enn viðvarandi
Samkvæmt rannsókninni eru konur um 63% starfsfólks í smásölu í Evrópu og á bilinu 55–60% þegar smásala og heildverslun eru teknar saman.
Þrátt fyrir mikilvægt framlag kvenna til greinarinnar eru þær mun líklegri til að gegna lægra launuðum störfum, vera í hlutastarfi og sinna þjónustustörfum í beinum samskiptum við viðskiptavini. Karlar eru hins vegar hlutfallslega fleiri í betur launuðum tækni- og stjórnunarstörfum.
Rannsóknin dregur fram ýmsa kerfislæga þætti sem viðhalda þessu misrétti, svo sem ótrygg ráðningarkjör, ófyrirsjáanlegan vinnutíma, ójafna skiptingu umönnunarábyrgðar, takmarkaða möguleika til starfsþróunar og vanmat á störfum sem konur hafa jafnan sinnt.
Kynbundið ofbeldi og áreitni, skortur á viðunandi úrræðum fyrir barnafjölskyldur og ófullnægjandi framfylgd jafnréttislöggjafar auka enn á vandann.
Sex áhersluþættir í baráttunni fyrir jafnrétti
Á vinnustofunni voru kynntir sex meginþættir sem stuðla að kynjamisrétti í verslun. Séverine Picard, rannsakandi hjá Progressive Policies, fór yfir niðurstöður rannsóknarinnar og þær áskoranir sem stéttarfélög standa frammi fyrir.
Þar var meðal annars fjallað um kynbundinn launamun, ótrygg og óhefðbundin ráðningarform, ójafna skiptingu umönnunarábyrgðar, ofbeldi og áreitni á vinnustöðum og áhrif stafrænnar þróunar og grænna umskipta.
Þátttakendur lögðu einnig áherslu á að konur af erlendum uppruna og konur sem verða fyrir margþættri mismunun geti staðið frammi fyrir enn fleiri hindrunum. Samstaða var um að taka þyrfti mið af slíkri mismunun í öllum aðgerðum í stað þess að líta á hana sem einangrað viðfangsefni.
Á grundvelli rannsóknarinnar voru skilgreind sex stefnumarkandi markmið:
-
Að stuðla að hefðbundnum ráðningarsamningum og fyrirsjáanlegum vinnutíma.
-
Að efla launagagnsæi og tryggja réttlátt og kynhlutlaust launakerfi.
-
Að samþætta vinnuvernd og öryggi við skipulag vinnunnar.
-
Að stuðla að jafnari skiptingu launaðrar vinnu og umönnunarábyrgðar.
-
Að tryggja að jafnréttissjónarmið séu höfð að leiðarljósi við stafræna umbreytingu.
-
Að bæta aðgengi að menntun og þjálfun og skapa raunveruleg tækifæri til starfsþróunar fyrir konur.
Drög að fimm ára aðgerðaáætlun gera ráð fyrir að stéttarfélög vinni að þessum markmiðum með öflugri trúnaðarmannastarfsemi, gagnaöflun, upplýsingamiðlun, fræðslu fyrir samningafólk og kjarasamningagerð.
Kjarasamningar geta skilað raunverulegum árangri
Mikilvægur þáttur vinnustofunnar fólst í því að miðla reynslu af aðgerðum stéttarfélaga í mismunandi Evrópulöndum.
Rætt var hvernig kjarasamningar og frumkvæði stéttarfélaga geta stuðlað að bættum starfskjörum, einkum fyrir konur í lægra launuðum og ótryggari störfum.
Meðal dæma sem kynnt voru má nefna sérstakar greiðslur fyrir helgarvinnu í Frakklandi, fyrirsjáanlegri vaktaskipulagningu í Belgíu, samningsbundnar reglur hjá Inditex og sveigjanlegt vinnufyrirkomulag fyrir starfsfólk með umönnunarábyrgð á Spáni.
Einnig var fjallað um mikilvægi tilskipunar Evrópusambandsins um launagagnsæi, sem getur orðið öflugt tæki til að vinna gegn ómálefnalegum launamun kynjanna.
Þessi dæmi sýna hvernig stéttarfélög geta nýtt kjarasamninga til að ná fram áþreifanlegum umbótum í daglegu lífi launafólks.
Stafræn umbreyting má ekki auka kynjamisrétti
Á síðari degi vinnustofunnar beindist athyglin að stafrænni þróun og grænum umskiptum og þeim áhrifum sem þessar breytingar geta haft á stöðu kvenna í verslun.
Sjálfvirknivæðing og ný tækni eru þegar farin að breyta störfum í smásölu og heildverslun. Störf við afgreiðslu og önnur framlínustörf, þar sem konur eru í miklum meirihluta, eru sérstaklega útsett fyrir tæknibreytingum.
Á sama tíma er hætta á að ný störf sem krefjast stafrænnar og tæknilegrar hæfni nýtist körlum frekar en konum, nema gripið verði til markvissra aðgerða til að tryggja jafnt aðgengi að menntun, þjálfun og starfsþróun.
Þátttakendur lögðu áherslu á að launafólk og stéttarfélög þess verði að hafa raunveruleg áhrif á ákvarðanir um innleiðingu nýrrar tækni og breytingar á störfum.
Einnig voru ræddar tillögur um evrópska tilskipun um réttlát umskipti, meðal annars um rétt starfsfólks til launaðrar fræðslu á vinnutíma.
Sérstaklega var bent á að starfsfólk í hlutastörfum, sem að stórum hluta eru konur, á oft erfiðara með að sækja sér endurmenntun. Umönnunarábyrgð, óreglulegur vinnutími og kostnaður geta staðið í vegi fyrir því að fólk öðlist þá hæfni sem þarf til að takast á við breytt störf.
Stéttarfélögin kölluðu því eftir markvissri greiningu á hæfniþörf sem sýni ekki aðeins hvaða störf muni breytast heldur einnig hvaða hópar verði fyrir áhrifum og hverjir fái tækifæri til að nýta þau nýju störf sem verða til.
Sameiginleg evrópsk stefna í jafnréttismálum
Vinnustofan var hluti af verkefninu I'M Pinc, sem UNI Europa stendur að með fjárstuðningi frá Evrópusambandinu. Markmið verkefnisins er að bæta starfskjör í verslun með því að samþætta kynjasjónarmið við stefnumótun, kjarasamninga og starf stéttarfélaga.
Verkefnið miðar að því að efla þekkingargrunn stéttarfélaga og þróa hagnýt verkfæri til að vinna gegn misrétti með kjarasamningum, öflugri hagsmunagæslu og samstarfi aðila vinnumarkaðarins.
Tillögurnar og drögin að fimm ára aðgerðaáætlun verða nú yfirfarin og fullunnin fyrir lokaráðstefnu verkefnisins sem haldin verður í Brussel 18. nóvember 2026.
Skilaboðin frá vinnustofunni eru skýr: Jafnrétti í verslun verður ekki tryggt með tækniframförum eða hagvexti einum saman. Til þess þarf markvissar aðgerðir sem tryggja réttlát laun, örugg starfskjör, heilsusamlegt starfsumhverfi og jöfn tækifæri fyrir allt launafólk.
Stéttarfélög gegna lykilhlutverki í að tryggja að breytingar á vinnumarkaði leiði til aukins jafnréttis og betri starfskjara fyrir alla.
Nánari upplýsingar: I'M Pinc – Improving Working Conditions through a Gender Perspective in Commerce.