Gervigreind viðfangsefni kjarasamninga
09. nóvember 2026Gervigreind snýst um völd og áhrif
Evrópsk rannsókn sýnir að stéttarfélög eru í auknum mæli farin að semja um notkun gervigreindar og reikniritastjórnunar á vinnustöðum í kjarasamningum. Niðurstöðurnar undirstrika mikilvægi þess að launafólk og stéttarfélög þess hafi raunveruleg áhrif á hvernig ný tækni er innleidd og notuð.
Gervigreind er þegar farin að breyta störfum, vinnuskipulagi og stjórnun hjá evrópskum atvinnurekendum. Þessar breytingar skapa ný tækifæri en á sama tíma þarf að svara spurningum um réttindi launafólks, persónuvernd, starfsöryggi og áhrif starfsfólks á eigið starfsumhverfi.
Ný rannsókn á vegum Friedrich-Ebert-Stiftung (FES) og UNI Europa, sem kynnt var 12. október 2026, sýnir að stéttarfélög í Evrópu eru í auknum mæli farin að taka þessi mál upp við gerð kjarasamninga.
Rannsóknin er afrakstur þriggja ára samstarfs UNI Europa, FES Future of Work og rannsóknaraðilanna Central European Labour Studies Institute (CELSI) og WageIndicator Foundation. Hún fjallar um hvernig gervigreind og reikniritastjórnun hafa orðið viðfangsefni kjarasamninga í evrópskum þjónustugreinum.
Við kynningu rannsóknarinnar lagði Oliver Roethig, framkvæmdastjóri UNI Europa, áherslu á að umræða um gervigreind á vinnumarkaði snerist ekki eingöngu um tækniframfarir.
Hún snerist einnig um það hver tæki ákvarðanir um notkun tækninnar og í þágu hverra hún væri nýtt.
Roethig benti á að rannsóknin sýndi að stéttarfélög væru þegar farin að semja um skýrar reglur um notkun gervigreindar. Launafólk þyrfti því ekki að vera óvirkur áhorfandi að tæknibreytingum heldur gæti haft bein áhrif á þróunina.
Knut Dethlefsen, framkvæmdastjóri hæfniseturs FES um framtíð vinnunnar, tók í sama streng. Hann lagði áherslu á að réttlát stafræn umbreyting krefðist ekki aðeins skýrrar löggjafar heldur einnig raunverulegrar þátttöku starfsfólks og fulltrúa þess í ákvörðunum um tæknibreytingar.
108 kjarasamningar með ákvæðum um gervigreind
Í rannsókninni voru greindir 108 kjarasamningar sem innihalda ákvæði um gervigreind eða reikniritastjórnun. Einnig var stuðst við niðurstöður kannana.
Með reikniritastjórnun er meðal annars átt við þegar tölvukerfi og sjálfvirkar ákvarðanir eru notuð til að skipuleggja, úthluta, fylgjast með eða meta vinnu starfsfólks.
Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru meðal annars þessar:
- 55% svarenda segja gervigreind hafa verið rædda í kjarasamningaviðræðum.
- Aukin áhersla á gervigreind í kjarasamningum kemur fram frá árinu 2023.
- Fræðsla og þjálfun, þátttaka starfsfólks í ákvörðunum og persónuvernd eru meðal algengustu viðfangsefna samninganna.
Marta Kahancová, einn höfunda rannsóknarinnar, benti á að samstarfsvettvangur aðila vinnumarkaðarins gæfu stéttarfélögum þegar tækifæri til að takast á við áhrif gervigreindar.
Rannsakendur halda jafnframt úti gagnagrunni um kjarasamninga á þessu sviði sem er uppfærður eftir því sem nýir samningar bætast við.
Dæmi frá Ítalíu og Noregi
Á kynningarfundinum voru einnig rædd dæmi um hvernig stéttarfélög hafa þegar náð árangri í samningum um notkun gervigreindar.
Federica Cochi, formaður APIQA CGIL og UNI Europa Professionals and Managers, kynnti meðal annars ákvæði um gervigreind í kjarasamningum innan talsetningar- og hljóð- og myndmiðlageirans á Ítalíu.
Einnig var fjallað um tólf mánaða tilraunatímabil vegna innleiðingar gervigreindarlausnar í fjarskiptageiranum og samkomulag við orkufyrirtækið Enel um sameiginlega nefnd sem fjallar um verkefni tengd gervigreind.
Frá Noregi lagði Bjørn Tore Sund, formaður siðanefndar NITO, áherslu á mikilvægi þess að efla þekkingu trúnaðarmanna á þessum málum. Fyrirtæki og stofnanir þyrftu að skilgreina skýrt hvaða markmiðum þau vildu ná með notkun gervigreindar og hvaða afleiðingar innleiðingin gæti haft.
Starfsfólk þarf að koma að ákvörðunum áður en tæknin er innleidd
Ein af megin niðurstöðum rannsóknarinnar er að samráð við launafólk verði að eiga sér stað áður en ákvarðanir um innleiðingu nýrrar tækni eru teknar. Það nægi ekki að kynna starfsfólki breytingarnar eftir að þær hafa þegar verið ákveðnar.
Fiona Dragstra, framkvæmdastjóri WageIndicator Foundation, hvatti stéttarfélög til að líta á innleiðingu gervigreindar sem mikilvæga breytingu á vinnuskipulagi sem eigi heima á samningaborðinu.
Hún benti á að hægt væri að taka þessi mál upp í nýjum kjarasamningaviðræðum eða með viðbótarsamningum við gildandi kjarasamninga.
Federica Cochi hvatti stéttarfélög jafnframt til að hefja umræðuna strax, jafnvel þótt þau teldu sig ekki enn búa yfir allri þeirri sérfræðiþekkingu sem þyrfti. Mikilvægast væri að hefja samtalið og tryggja þátttöku starfsfólks.
Mikilvægt viðfangsefni fyrir verslun og þjónustu
Þróun gervigreindar og aukin notkun reiknirita hefur mikla þýðingu fyrir starfsfólk í verslun og þjónustu. Tæknin getur haft áhrif á fjölmarga þætti starfsins, svo sem vaktaskipulag, verkefnaúthlutun, frammistöðumat, þjónustu við viðskiptavini og eftirlit með starfsfólki. Því er mikilvægt að tryggja að innleiðing hennar fari fram með gagnsæjum hætti og að réttindi starfsfólks séu virt.
Fyrir stéttarfélög er jafnframt mikilvægt að fylgjast með því hvernig tæknibreytingar hafa áhrif á störf, hæfnikröfur og möguleika starfsfólks til endurmenntunar og starfsþróunar. Rannsóknin sýnir að kjarasamningar hafa haft áhrif á stefnumótun atvinnurekenda og tryggja að launafólk hafi áhrif á breytingarnar.
UNI Europa hefur varað við því að fyrirhugaðar breytingar á regluverki Evrópusambandsins, meðal annars í tengslum við svokallaðan Digital Omnibus, geti veikt réttarvernd launafólks. Samtökin kalla eftir bindandi evrópskum reglum um notkun gervigreindar og reikniritastjórnunar á vinnustöðum, þar sem réttur stéttarfélaga til kjarasamningagerðar og þátttöku í ákvörðunum sé tryggður.
Meginniðurstaða rannsóknarinnar er að þótt gervigreind muni óhjákvæmilega hafa áhrif á framtíð starfa sé ekki fyrir fram ákveðið hvernig þær breytingar verði. Það skiptir máli hverjir fá að móta þróunina, hvernig ákvarðanir eru teknar og hvernig ávinningi af nýrri tækni er skipt.
Stéttarfélög þurfa því að vera virkir þátttakendur í þessari þróun og tryggja að tækniframfarir leiði til bættra starfskjara, aukinnar hæfni og sterkari réttinda launafólks.
Heimildir og nánari upplýsingar:
- UNI Europa – Unions put AI on the bargaining table, new FES–UNI Europa study finds
- Rannsókn FES og UNI Europa um gervigreind, reikniritastjórnun og kjarasamninga
LÍV er aðili að UNI Europa.