Sögulegur sigur fyrir starfsfólk á stafrænum vinnumarkaði
22. júní 2026Sögulegur sigur fyrir starfsfólk á stafrænum vinnumarkaði: ILO samþykkir fyrstu alþjóðlegu reglurnar um vettvangsvinnu
Alþjóðavinnumálastofnunin (ILO) hefur samþykkt nýjan alþjóðasamning sem setur í fyrsta sinn bindandi alþjóðleg viðmið um réttindi starfsfólks á stafrænum vinnuvettvöngum. Samningurinn markar tímamót í réttindabaráttu milljóna einstaklinga um allan heim sem afla sér tekna í gegnum stafræna vinnumiðlun.
Samningurinn, sem ber heitið Convention concerning Decent Work in the Platform Economy, var samþykktur á Alþjóðavinnumálaþinginu í Genf að loknum viðræðum fulltrúa stjórnvalda, atvinnurekenda og launafólks. Með honum eru lagðar alþjóðlegar grunnreglur um starfsskilyrði á þessum ört vaxandi hluta vinnumarkaðarins.

Mikilvægur áfangi fyrir réttindi launafólks
Samningurinn nær til fjölbreytts hóps starfsfólks sem starfar í gegnum stafræna vettvanga, þar á meðal ökumanna í akstursþjónustu, sendla, heimilishjálpar, umönnunarstarfsfólks, sjálfstætt starfandi sérfræðinga á netinu og þeirra sem sinna gagnavinnu.
Með samþykkt samningsins er viðurkennt að tækniframfarir og ný viðskiptamódel megi ekki verða til þess að grundvallarréttindi launafólks séu skert. Markmiðið er að tryggja að starfsfólk njóti sömu verndar og annað vinnandi fólk, óháð því hvort vinnunni sé stýrt af yfirmanni eða reikniriti.
Skýrari staða starfsfólks
Eitt af lykilatriðum samningsins er að ríki verða að tryggja að staða starfsfólks sé metin út frá raunverulegu vinnusambandi en ekki eingöngu þeim samningum eða skilgreiningum sem fyrirtæki kjósa að nota.
Þetta er sérstaklega mikilvægt þar sem gagnrýni hefur lengi verið uppi um að mörg fyrirtæki í vettvangshagkerfinu hafi flokkað starfsfólk sitt sem sjálfstæða verktaka þrátt fyrir að starfsaðstæður þeirra beri mörg einkenni hefðbundins ráðningarsambands.
Reglur um reiknirit og gervigreind
Samningurinn setur jafnframt í fyrsta sinn alþjóðlegar reglur um svokallaða reikniritsstjórnun (algorithmic management), þar sem gervigreind og sjálfvirk kerfi taka ákvarðanir um verkefni, tekjur og aðgang starfsfólks að vinnu.
Kveðið er á um aukið gagnsæi, rétt starfsfólks til upplýsinga um mikilvægar sjálfvirkar ákvarðanir og að mannleg yfirferð skuli vera möguleg þegar ákvarðanir hafa áhrif á afkomu starfsfólks.
Þá eru einnig settar reglur sem vernda starfsfólk gegn óréttmætum lokunum eða útilokunum af vinnuvettvöngum og tryggja aukna vernd persónuupplýsinga.
Félagsleg réttindi og öryggi
Með samningnum er einnig staðfest að starfsfólk á stafrænum vinnuvettvöngum eigi rétt á félagslegri vernd, öruggu vinnuumhverfi og aðgangi að almannatryggingakerfum.
Jafnframt er áréttað að það eigi rétt á að stofna stéttarfélög, ganga í stéttarfélög og semja sameiginlega um kjör sín, rétt eins og annað launafólk.
Árangur margra ára baráttu
Samþykkt samningsins er afrakstur meira en áratugar langrar réttindabaráttu stéttarfélaga og starfsfólks sem starfar í vettvangshagkerfinu. Á undanförnum árum hafa stéttarfélög um allan heim bent á skort á vernd, óskýra stöðu starfsfólks og skort á gagnsæi í starfsemi margra stafrænna vinnuvettvanga.
Fulltrúar starfsfólks frá fjölmörgum löndum tóku þátt í viðræðunum í Genf og lögðu sitt af mörkum til að tryggja að rödd þeirra heyrðist við mótun nýju reglanna.
Mikilvæg skilaboð til framtíðarinnar
Samþykkt ILO á þessum nýja alþjóðasamningi sendir skýr skilaboð um að þróun tækninnar megi ekki ganga á réttindi launafólks. Þvert á móti verði ný tækni að þjóna fólki og stuðla að mannsæmandi störfum.
Fyrir verkalýðshreyfinguna markar samningurinn mikilvægan sigur og staðfestir að grundvallarréttindi launafólks eigi að gilda á öllum vinnumarkaði – einnig þeim stafræna.
Heimild: UNI Global Union