Fara á efnissvæði
Aftur í fréttayfirlit

LÍV krefst þess að frumvarp um atvinnuleysistryggingar verði dregið til baka

Leggst eindregið gegn frumvarpi ríkisstjórnarinna

Landssamband íslenzkra verzlunarmanna (LÍV) leggst eindregið gegn frumvarpi ríkisstjórnarinnar um breytingar á lögum um atvinnuleysistryggingar og lögum um vinnumarkaðsaðgerðir. Frumvarpið felur í sér að bótatímabil verði stytt úr 30 mánuðum í 18 mánuði og að ávinnsluskilyrði verði hert verulega.

Í umsögn LÍV til velferðarnefndar Alþingis er áréttað að atvinnuleysistryggingar séu eitt af grundvallaröryggiskerfum launafólks. Réttindin séu ekki sjálfgefin heldur áunnin með þátttöku á vinnumarkaði og veiti nauðsynlegt öryggi þegar fólk missir vinnuna . Fyrirhugaðar breytingar feli í sér alvarlega skerðingu á réttindum og muni veikja stöðu þeirra sem standa höllum fæti á vinnumarkaði.

Heildarmyndin verður að liggja fyrir

Stjórnvöld hafa vísað til samanburðar við önnur Norðurlönd til stuðnings breytingunum. LÍV bendir á að slíkur samanburður sé ófullnægjandi nema litið sé til heildarútgjalda til atvinnuleitenda og umfangs virkra vinnumarkaðsaðgerða. Í umsögninni er bent á að Ísland verji hlutfallslega minna fjármagni til slíkra aðgerða en mörg nágrannalöndin. Að mati LÍV er því röng forgangsröðun að stytta bótatímabil án þess að fyrir liggi skýr áætlun um eflingu úrræða, fjármögnun þeirra og raunhæfa stefnu um virkni og endurkomu fólks til starfa.

LÍV undirstrikar að lengd bótatímabilsins verði að skoða í samhengi við þjónustu, ráðgjöf og menntaúrræði sem standa atvinnuleitendum til boða. Án slíkra greininga sé erfitt að meta áhrif frumvarpsins á einstaklinga og vinnumarkaðinn í heild.

Sveigjanlegur vinnumarkaður krefst sterks öryggisnets

Íslenskur vinnumarkaður einkennist af sveigjanleika og tiltölulega lítilli ráðningarvernd í alþjóðlegum samanburði. Ein af forsendum þess fyrirkomulags hefur verið réttur launafólks til atvinnuleysistrygginga. LÍV varar við því að veikja það öryggisnet. Þrátt fyrir að blikur séu á lofti í efnahagslífinu er atvinnuleysi enn lágt í alþjóðlegum samanburði og langtímaatvinnuleysi einnig. Að mati LÍV hefur því ekki verið sýnt fram á knýjandi þörf fyrir þær róttæku breytingar sem frumvarpið felur í sér.

Breið andstaða verkalýðshreyfingarinnar

VR hefur einnig mótmælt frumvarpinu og bent á að um sé að ræða alvarlega skerðingu á réttindum launafólks. VR gagnrýnir að breytingarnar virðist fyrst og fremst drifnar áfram af niðurskurðarsjónarmiðum og að skortur sé á greiningu á áhrifum þeirra.

ASÍ hefur sömuleiðis lagt til að frumvarpið verði dregið til baka og gagnrýnir harðlega skort á samráði. Samkvæmt umsögn ASÍ ganga áformin gegn áratuga hefð um þríhliða samstarf aðila vinnumarkaðarins og stjórnvalda í málum sem varða grundvallarréttindi launafólks.

Krafan skýr: Draga frumvarpið til baka

LÍV leggur til að frumvarpinu verði vísað aftur til ríkisstjórnar til nánari vinnslu og að sú vinna fari fram í raunverulegu samráði við verkalýðshreyfinguna. Að þvinga í gegn breytingar á jafn mikilvægu réttindakerfi án slíks samráðs skapi hættulegt fordæmi til framtíðar.

Atvinnuleysistryggingar eru hornsteinn afkomuverndar launafólks og órjúfanlegur hluti af íslenska vinnumarkaðslíkaninu. LÍV mun áfram standa vörð um réttindi félagsfólks síns og krefjast þess að breytingar á kerfinu séu unnar á vönduðum forsendum og í fullu samráði við aðila vinnumarkaðarins.

Umsögn LÍV

Umsögn VR

Umsögn ASÍ