Forsendubrestur kallar á leiðréttingu
22. september 2026Forsendur kjarasamninga brostnar – leiðréttingar fyrir launafólk þurfa að koma til
Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, segir í nýlegri frétt, stöðuna í kjaramálum þunga eftir að forsendur gildandi kjarasamninga brustu. Stéttarfélögin hafa frest til 8. október til að taka ákvörðun um hvort samningunum verði sagt upp. Hún segir ljóst að komi ekki til aðgerða og leiðréttinga fyrir launafólk verði erfitt að halda samningunum áfram.
Þríhliða samtal hefur staðið yfir milli ASÍ, Samtaka atvinnulífsins og ríkisstjórnarinnar og vonir standa til þess að það skili árangri. Halla segir hins vegar að fjárlagafrumvarpið hafi sett strik í reikninginn og að erfitt sé að byggja á loforðum um úrbætur sem eigi ekki að koma til framkvæmda fyrr en eftir 8. október.
Kaupmáttur og lífskjör í forgrunni
Samhliða þríhliða samtalinu eiga verkalýðsfélög í viðræðum við Samtök atvinnulífsins um kjarasamningana sjálfa. Halla segir lítið hafa þokast í þeim viðræðum og að skýr krafa sé um að komið verði til móts við launafólk.
„Við höfum verið alveg skýr á því að það þurfi að koma á einhvern hátt til móts við launafólk sem hefur tekið á sig mikið högg á meðan aðrir hafi ekki staðið við sitt,“ segir Halla.
Kjarasamningsbundnar launahækkanir hafa verið undir verðbólgu. Munurinn nemur tæplega 2,3% og á sama tíma hefur húsnæðiskostnaður margra aukist verulega. Halla leggur áherslu á að grundvallarverkefni verkalýðshreyfingarinnar sé að standa vörð um kaupmátt og lífskjör félagsfólks.
Launaleiðréttingar og orlofsdagar á borðinu
Meðal þeirra leiða sem lagðar hafa verið fram í viðræðum við Samtök atvinnulífsins eru launaleiðréttingar og orlofsdagar. Orlofsdagarnir eru hugsaðir sem leið til að koma til móts við skerðingu á þjónustu við barnafólk, sérstaklega í leikskólum.
Halla segir tímann fram að 8. október skamman og gagnrýnir hversu hægt mál hafi þróast. Þegar í vor hafi verið kallað eftir aðgerðum til að undirbúa haustið, en ekki hafi verið brugðist við því ákalli.
„Við erum í erfiðri stöðu og sjáum ekki fram úr henni eins og staðan er núna og þá höfum við engan annan valkost en að segja upp kjarasamningunum ef ekkert verður að gert,“ segir Halla.
Jafnframt hafa verið send bréf til fyrirtækja og sveitarfélaga þar sem óskað er eftir upplýsingum um hvað þau séu tilbúin að leggja af mörkum. Að sögn Höllu hafa borist nokkur góð svör, en viðbrögðin séu misjöfn.
Heimild: MBL.is