ETUC kallar eftir metnaðarfyllri aðgerðum
05. ágúst 2026ETUC kallar eftir metnaðarfyllri aðgerðum fyrir góð störf í Evrópu
Evrópska verkalýðssambandið (ETUC) telur að fyrirhugaður Quality Jobs Act (Lög um gæðastörf) verði að fela í sér bindandi lagasetningu til að bæta starfskjör og réttindi launafólks um alla Evrópu. Þetta kemur fram í umsögn ETUC vegna annarrar samráðslotu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins við aðila vinnumarkaðarins um frumvarpið.
Samkvæmt ETUC er jákvætt að framkvæmdastjórnin viðurkenni þau vandamál sem starfsfólk stendur frammi fyrir, en núverandi tillögur gangi ekki nógu langt. Reynslan sýni að leiðbeiningar og vitundarvakningar dugi ekki til að leysa þann vanda sem fylgir ótryggum störfum og slæmum starfsaðstæðum. Nauðsynlegt sé að setja skýra og bindandi löggjöf sem tryggi raunverulegar umbætur.
ETUC leggur meðal annars áherslu á að Quality Jobs Act tryggi:
-
rétt til starfsþjálfunar á vinnutíma og betri undirbúning og stjórnun breytinga á vinnumarkaði sem hluta af réttlátum umskiptum;
-
takmörkun undirverktakakeðja við tvö stig, sameiginlega ábyrgð aðila og skýrari reglur um vinnumiðlun;
-
aðgerðir gegn streitu á vinnustöðum, rétt til að aftengjast vinnu utan vinnutíma og aukna vernd gegn hita á vinnustað;
-
reglur um notkun reikniritastjórnunar (algorithmic management) sem byggjast á því að fólk hafi ávallt stjórnina;
-
að ótryggum ráðningarsamböndum verði útrýmt með lagalegum rétti til fastráðningar og fulls starfshlutfalls.
Framkvæmdastjóri ETUC, Esther Lynch, segir að öll störf eigi að vera gæðastörf. Hún bendir á að slæm störf hafi neikvæð áhrif á líf launafólks og grafi jafnframt undan samkeppnishæfni Evrópu með því að auka skort á vinnuafli og færni.
Að mati ETUC þarf Quality Jobs Act að marka raunveruleg tímamót með nýrri bindandi löggjöf sem styrkir réttindi launafólks og tryggir sanngjörn starfskjör í ljósi þeirra áskorana sem vinnandi fólk stendur frammi fyrir í dag.
Heimild: European Trade Union Confederation (ETUC)