Fara á efnissvæði
Aftur í fréttayfirlit

Réttlát umskipti lykilatriði

Ný skýrsla Vörðu varpar ljósi á ólíka stöðu launafólks gagnvart breytingum á vinnumarkaði

Miklar og hraðar breytingar á vinnumarkaði eru fyrirsjáanlegar á næstu árum, meðal annars vegna örra tæknibreytinga og áhrifa loftslagsbreytinga. Tilkoma gervigreindar og aukin sjálfvirkni munu hafa áhrif á störf fjölda fólks – störf tengd tækni munu fjölga á sama tíma og hefðbundnum skrifstofu- og þjónustustörfum er spáð fækkun.

Ný skýrsla Vörðu – Rannsóknastofnunar vinnumarkaðarins sýnir að launafólk stendur missterkt að vígi þegar kemur að því að mæta þessum breytingum. Skýrslan byggir á umfangsmikilli könnun meðal félagsfólks í aðildarfélögum ASÍ og BSRB og varpar skýru ljósi á að áhrif tækni- og loftslagsbreytinga dreifast ekki jafnt milli hópa.

Réttlát umskipti lykilatriði

Í umræðu um umbreytingar á vinnumarkaði hefur hugtakið réttlát umskipti orðið sífellt fyrirferðarmeira. Það lýsir þeirri nálgun að breytingar á hagkerfum og samfélögum þurfi að vera félagslega sanngjarnar og tryggja að byrðarnar falli ekki þyngst á þá hópa sem standa veikast. Niðurstöður skýrslu Vörðu sýna að slíkt sjónarhorn er brýnna en nokkru sinni fyrr.

Tæplega fjórðungur launafólks innan ASÍ og BSRB telur að starf sitt hafi þegar breyst eða muni breytast vegna nýrrar tækni eða loftslagsbreytinga. Þegar nánar er skoðað hvernig þessar breytingar leggjast á fólk kemur í ljós að munur milli hópa er töluverður.

Mest óöryggi meðal innflytjenda og tekjulægri hópa

Þriðjungur þeirra sem eru í störfum sem hafa tekið breytingum eða eru líkleg til að taka breytingum vegna tækni eða loftslagsmála hefur áhyggjur af starfsöryggi sínu. Áhyggjurnar eru þó ekki jafndreifðar. Innflytjendur og fólk í tekjulægstu hópunum eru mun líklegri en aðrir til að óttast um framtíð sína á vinnumarkaði.

Sömuleiðis telja færri í þessum hópum að þeir geti haldið áfram í núverandi starfi – eða öðru starfi á sama vinnustað – með endurmenntun eða aukinni færni. Þetta bendir til þess að aðgengi að þjálfun og tækifærum til hæfniuppbyggingar sé ekki jafnt og að sérstaka athygli þurfi að beina að þeim hópum sem standa veikast.

Aukið álag í kjölfar breytinga

Breytingar á vinnuumhverfi hafa ekki aðeins áhrif á starfsöryggi heldur einnig álag í starfi. Meira en fjórir af hverjum tíu sem hafa orðið fyrir áhrifum tækni- eða loftslagsbreytinga segja að álag í starfi hafi aukist. Hlutfallið er enn hærra meðal innflytjenda, fólks í tekjulægri hópum og í ákveðnum starfsgreinum, svo sem í matvælaframleiðslu, menningar- og skapandi greinum og í leikskólum.

Þessar niðurstöður undirstrika að tæknibreytingar geta aukið kröfur og hraða í starfi, sérstaklega þar sem starfsfólk hefur lítið svigrúm til að hafa áhrif á innleiðingu breytinganna.

Tækifæri felast í tæknibreytingum – en ekki fyrir alla

Þrátt fyrir áskoranirnar telja flestir þeirra sem hafa orðið fyrir áhrifum breytinganna að tæknibreytingar muni auðvelda þeim starf sitt. Tæplega tveir þriðju eru sammála þeirri fullyrðingu. Þar kemur þó aftur fram skýr munur eftir stöðu á vinnumarkaði. Fólk með hærri atvinnutekjur er mun líklegra til að sjá tækni sem tækifæri, á meðan starfsfólk í leikskólum og ræstingum er síður sammála því að breytingarnar muni bæta starfsaðstæður þeirra.

Þörf á markvissari þjálfun og endurmenntun

Þegar spurt var hvort fólk hefði fengið viðeigandi þjálfun eða endurmenntun við innleiðingu nýrrar tækni eða breytinga á vinnustaðnum, sögðust rúmlega helmingur hafa fengið slíkan stuðning. Þótt það sé jákvætt er ljóst að stór hópur stendur eftir án nægjanlegrar aðstoðar til að takast á við nýjar kröfur í starfi.

Skýr skilaboð til stjórnvalda og vinnumarkaðarins

Skýrsla Vörðu byggir á nær 25.000 svörum og er sú umfangsmesta sem gerð hefur verið á lífsskilyrðum launafólks til þessa. Niðurstöðurnar senda skýr skilaboð: Umbreytingar á vinnumarkaði eru óhjákvæmilegar, en hvernig þær eru útfærðar skiptir sköpum.

Til að tryggja réttlát umskipti þarf markvissa stefnu, sterkt samstarf stjórnvalda, atvinnurekenda og stéttarfélaga, og tryggt að allir hópar launafólks hafi raunveruleg tækifæri til að aðlagast breyttum aðstæðum.

Skýrsluna má lesa í heild sinni á vef Vörðu.

Heimild: Vinnan