Fara á efnissvæði
Aftur í fréttayfirlit

Fulltrúar LÍV í ASÍ-UNG

Öflugir fulltrúar LÍV í stjórn ASÍ-UNG

Hópur fulltrúa ungs fólks í verkalýðshreyfingunni sótti 10. þing ASÍ-UNG sem fram fór á Hellu 7. nóvember sl. Helsta málefni þingsins var efling ungs fólks til að hafa áhrif. Gestir voru Gundega Jaunlinina, varaformaður Hlífar, Birkir Snær Guðjónsson, varaformaður AFLs og Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður RSÍ. Gestir sögðu þingfulltrúum frá reynslu sinni af verkalýðsmálum og hvernig vegferð þeirra hafi verið innan hreyfingarinnar til dagsins í dag. Ungu fólki voru gefin góð ráð og það hvatt til áhrifa enda mikilvægt að raddir ungs fólks heyrist í samfélaginu.

Finnbjörn A. Hermannsson, forseti Alþýðusambandsins, ávarpaði þingið. Hvatti hann unga fólkið til dáða og sagði mikilvægt að það léti til sín taka innan hreyfingarinnar og í samfélaginu öllu.

Fulltrúar LÍV sóttu þingið og eru þau Birgitta Ragnarsdóttir, Þorvarður Bergmann Kjartansson og Mateusz Gabríel K. Róbertsson fulltrúar í LÍV í nýkjörinni stjórn ASÍ-UNG

Stjórn ASÍ-UNG árin 2024 til 2025 er skipuð eftirfarandi:

Ástþór Jón Ragnheiðarson

Ásdís Helga Jóhannsdóttir

Birgitta Ragnarsdóttir

Þorvarður Bergmann Kjartansson

Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir

Guðmunda Steina Jósefsdóttir

Andri Ólafsson

Svanfríður Guðrún Bergvinsdóttir

Inga Fanney Rúnarsdóttir

Varamenn:

Mateusz Gabríel K. Róbertsson

Svandís Dóra Jónsdóttir

Elín Ósk Sigurðardóttir

Stjórn skipar með sér verkum samkvæmt samþykktum ASÍ-UNG og ákvað nýkjörin stjórn að Ástþór Jón Ragnheiðarson yrði áfram starfandi formaður og Ásdís Helga Jóhannsdóttir áfram starfandi varaformaður.