Aftur í fréttayfirlit
Forsendur kjarasamnings stóðust
03. október 2025Niðurstaða launa- og forsendunefndar kjarasamninga
Í samræmi við ákvæði kjarasamninga kom sameiginleg launa- og forsendunefnd Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins saman til fundar þann 29. september til að leggja formlegt mat á samningsforsendur stöðugleikasamninganna. Mat nefndarinnar er að forsendur hafi staðist.
Nefndin mun næst leggja mat á forsendurnar að ári liðnu, í september 2026.