Fimm félög sameinast um félagakerfi
08. mars 2023AFL Starfsgreinafélag, Efling Stéttarfélag, Aldan Stéttarfélag, Stéttarfélag Vesturlands og Verkalýðsfélagið Hlíf hafa undirritað samkomulag um rekstur félagakerfisins Tótal. Fjögur síðarnefndu félögin hafa einnig keypt hluti í Félagakerfinu Tótal ehf., sem áður var að fullu í eigu AFLs Starfsgreinafélags.
Hlutafélagið verður rekið sem óhagnaðardrifið félag í framtíðinni – þ.e. að rekstrarkostnaði þess verður deilt niður á notendur félagakerfisins í hlutfalli við notkun hvers og eins.
Samstarfssamningur félaganna og kaup á hlutafé í kerfinu er niðurstaða viðræðna félaganna í á annað ár. Verkalýðsfélagið Hlíf hóf notkun á félagakerfinu Tótal fyrir um ári síðan en hin þrjú félögin hófu viðræður við AFL Starfsgreinafélag síðastliðið haust. Jafnframt samstarfssamningnum hafa félögin fimm gengið frá samstarfs-og rammasamningi við Advania um áskrift að bókhaldskerfi, hýsingu og aðra skylda þjónustu.
Í augnablikinu er verið að flytja gögn Öldunnar og StéttVest yfir í Tótal og innleiðing í kerfið hefst á næstu vikum. Verið er að vinna innleiðingaráætlun fyrir Eflingu og er stefnt að því að innleiðingu verði að fullu lokið í maí.
Nokkur önnur félög innan Alþýðusambands Íslands hafa óskað eftir kynningu á Tótal félagakerfi og eru kynningarfundir áformaðir á næstu vikum.
Uppruna Tótal félagakerfis má rekja til 2011 er AFL Starfsgreinafélag lét gera orlofskerfi fyrir sig en notaði að öðru leyti félagakerfið Bóta. 2016 tók AFL í notkun félagakerfishluta sem m.a. tekur á móti skilagreinum og heldur utan um styrki og sjúkradagpeninga.
Kerfið er í stöðugri þróun og inniheldur m.a. kosningakerfi, hópa-og skeytakerfi, vefverslun, aðgangsstýrikerfi fyrir orlofsíðbúðir auk orlofskerfis, iðgjaldakerfis og styrkja og dagpeningakerfis. Að auki er unnt að vinna fjölda skýrslna úr kerfinu. Tótal tengist Navision / BC bókahaldskerfi með veflausn og með þeirri samþættingu verður innheimta iðgjalda og afgreiðsla styrkja og dagpeninga sjálfvirk.
Kerfið er með „mínar síður“ sem nú þegar eru á sjö tungumálum og unnið að fjölgun þeirra. Mínar síður bjóða upp á fjölbreytta möguleika til gagnvirkni og að félagsmenn geti sinnt málum sínum sjálfir á þeim.
Síðustu mánuði hefur verið unnið að viðbótum við kerfið í samráði við ofangreind félög og tekið tillit til sérþarfa hvers og eins.
Tótal félagakerfi er að öllu leyti íslensk smíði og er forritað af Austurnet ehf. – sem er hugbúnaðarfyrirtæki sem staðsett er á Egilsstöðum. Kerfið var skrifað fyrir AFL Starfsgreinafélag og voru tíðir rýnifundir starfsfólks AFLs grundvöllur þróunarvinnunnar. Þróun kerfisins og viðbætur hafa allar verið í nánu samráði við starfsfólk AFLs og nú síðustu mánuði starfsfólk Hlífar og loks hinna þriggja félaganna.