Aftur í fréttayfirlit
Ert þú að huga að starfsþróun?
22. nóvember 2022Mikilvægt að huga að starfsmenntun
Nýr og glæsilegur vefur Starfsmenntasjóðs verslunar- og skrifstofufólks hefur nú verið opnaður. Sjóðurinn er stofnaður á grundvelli kjarasamnings á milli Samtaka atvinnulífsins (SA) annars vegar og VR og Landssambands íslenzkra verzlunarmanna (LÍV) hins vegar dags. 14. maí 2000.
Hlutverk Starfsmenntasjóðs verslunar- og skrifstofufólks samanstendur af fimm atriðum, en þau eru:
- Að auka starfshæfni og menntunarstig félagsmanna sjóðsins sem leitt gæti til virðisauka fyrir þá og fyrirtækin.
- Að bæta samkeppnishæfni fyrirtækja sem greiða í sjóðinn með aukinni menntun starfsfólks.
- Að stuðla að aukinni virðingu fyrir störfum í verslunar-, þjónustu- og skrifstofugreinum með því m.a. að styðja við áframhaldandi þróun náms fyrir þá sem starfa við þau.
- Að hvetja félagsmenn til náms.
- Að hvetja fyrirtæki til að hækka menntunarstig í fyrirtækjum.
Kynntu þér kosti sem í boði eru á vef sjóðsins