Aftur í fréttayfirlit
Erlent samstarf - þing UNI
02. júní 2003Erlent samstarf - þing UNI
Þing UNI-Europa commerce og þing UNI-Europa
Guðrún Erlingsdóttir, Gunnar Páll Pálsson og Ingibjörg R. Guðmundsdóttir
sátu þing UNI-Europa fyrir hönd LÍV og VR ásamt Georgi P. Skúlasyni,
Félagi bókargerðarmanna og Helgu Jónsdóttir og Friðberti Traustasyni,
Sambandi ísl. bankamanna.
Aðstæður verslunarfólks í brennidepli
Stytting vinnutíma og staða kvenna í verslunargeiranum í Evrópu voru meðal helstu umræðuefna á fyrsta þingi UNI-Europe Commerce sem haldið var í Stokkhólmi í maí s.l. Í UNI-Europe Commerce eru samtök verslunarfólks í Evrópu innan UNI (Union Network International), alþjóðasamtaka starfsfólks í verslun og þjónustu.