Um LÍV
LÍV var stofnað 2. júní 1957. Sambandið er heildarsamtök starfsfólks í verslunar-, skrifstofu- og þjónustugreinum. Í því eru 10 verslunarmannafélög og deildir verslunarmanna víðsvegar á landinu með rúmlega 40 þúsund fullgilda félagsmenn.
Tilgangur sambandsins er að vera sameiginlegur vettvangur aðildarfélaganna til að vinna að bættum kjörum og öðrum hagsmunamálum félagsmanna. Að efla aðildarfélög og deildir, vera málsvari þeirra og hafa á hendi forystu í hagsmunamálum þeirra.Að leitast við að samræma grundvallarstefnu aðildarfélaga sinna í kjaramálum og standa að gerð kjarasamninga eftir því, sem aðildarfélögin fela því hverju sinni. Að beita sér fyrir aukinni starfsmenntun, starfsþjálfun, endur- og símenntun félagsmanna. Að koma fram fyrir hönd aðildarfélaga sinna í sameiginlegum málum og öðru sem þau verða ásátt að fela því. Að sinna samstarfi við önnur samtök launþega innanlands og utan.
Skrifstofa LÍV veitir félögunum almenna þjónustu vegna kjarasamninga og skyldra mála. Ennfremur starfar LÍV að starfsmenntun verslunarfólks og hefur haft á hendi kjarasamningagerð fyrir aðildarfélögin önnur en VR.
LÍV er aðili að:
ASÍ - www.asi.is
Alþýðusamband Íslands og er annað stærsta landssambandið innan ASÍ. ASÍ sem stofnað var 1916, er stærsta fjöldahreyfing launafólks í landinu. Aðild að ASÍ eiga 7 landssambönd stéttarfélaga með u.þ.b. 70 þúsund félagsmenn.
Auk þess sem LÍV er aðili að alþjóðlegu samstarfi samtaka launafólks
NS, Nordisk Samarbejdskomité
LÍV gerðist aðili að Norrænu samstarfsnefndinni árið 1960. Tilgangur samtakanna er að efla samvinnu milli verslunarmannasamtakanna og styrkja þau í baráttunni fyrir bættum kjörum og réttindum.
Samböndin, sem það sameinaðist voru:
CI - Communications International (Alþjóðasamband starfsfólks við samskiptatækni), sem var stofnað 1911 og var með 4.5 milljónir félagsmanna.
IGF - International Graphical Federation (Alþjóðasamband starfsfólks við prentverk og grafíska hönnun), sem var stofnað 1896 og var með um 1 milljón félagsmanna.
MEI - Media and Entertainment International (Alþjóðasamband starfsfólks við fjölmiðlun og í skemmtanaiðnaðinum), sem var stofnað 1965 og var með 200.000 félagsmenn.
Union Network International (UNI)
Hið nýja samband, sem heitir Union Network International (UNI), tók til starfa í ársbyrjun árið 2000 og það er málsvari 15,5 milljónir félagsmanna í 900 landssamböndum/landsfélögum í 140 löndum.
Skrifstofur UNI eru í Nyon í nágrenni Genfar og þar hefur verið byggt nýtt hús yfir starfsemina. Byggingin hefur gengið nærri fjárhag sambandsins og hefur verið leitað eftir stuðningi frá aðildarsamböndunum.
UNI skiptist eftir landssvæðum (regions) í:
- UNI-Africa (Afríka)
- UNI-Americas (Norður og Suður Ameríka)
- UNI-Asia and Pacific (Asía og Kyrrahaf)
- UNI-Europa (Evrópa)
Það skiptist einnig eftir starfsgreinum í geira (sectors):
- UNI Commerce (verslunar) – stærsti geirinn með u.þ.b. 5 milljónir félagsmanna
- UNI Electricity (rafmagns)
- UNI Finance (fjármála)
- UNI Graphical (grafíska)
- UNI Hair & Beauty (hár og snyrti)
- UNI IBITS -Industry, business, services and IT (hvítflibbar í iðnaði, viðskiptum, þjónustu og upplýsinga- og tækniiðnaði
- UNI Media, Entertainment and Arts (fjölmiðlar, skemmtanaiðnaður og listir)
- UNI Postal (póstur)
- UNI Property Services (fasteignaþjónusta)
- UNI Social Insurance & Private Health Care (almannatryggingar og heilsugæsla á almennum markaði
- UNI Telecommunications (sími)
- UNI Tourism (ferðaþjónusta).
Auk þessa eru skipulagðir þrír hópar, sem ganga þvert á starfsgreinaskiptinguna en það eru (Interprofessional groups):
- UNI Women (konur)
- UNI Youth (ungliðar)
- UNI Professional & Managerial (sérfræðingar og stjórnunarstarfsfólk).